Persónuvernd
Síðast uppfært: 1. september 2026
Hver ber ábyrgð
Plönum er íslenskt app. Ábyrgðaraðili gagnanna þinna er útgefandi appsins og næst í hann á hallo@plonum.app.
Hvaða gögn við söfnum
Þegar þú skráir þig inn með Google, Apple eða netfangi söfnum við nafni þínu og netfangi, ásamt prófílmynd ef innskráningarleiðin gefur hana. Við geymum líka virkni þína í appinu: svör um mætingu, bókaeinkunnir og bókameðmæli, uppskriftir, vikumatseðil og verkefni sem þú setur inn.
Til viðbótar geymum við tungumálastillingu, stillingar þínar á áminningum og tækjaauðkenni fyrir tilkynningar svo appið geti sent þér ýtitilkynningar. Við söfnum ekki staðsetningu og notum ekki rekjara frá þriðja aðila.
Hrynji appið — eða komi upp villa sem það lifir af — sendir það sjálfvirkt villuskýrslu til Firebase með tæknilegum upplýsingum: hvar villan kom upp, hvaða aðgerð féll, hvaða tæki þú ert með og hvaða útgáfu af stýrikerfi og appi. Þjónninn okkar skráir líka beiðnir sem mistakast og geymir þær í 30 daga. Hvorugu fylgir nafn, netfang eða innihald þess sem þú hefur skrifað — aðeins auðkennisnúmerið þitt. Við notum þetta eingöngu til að laga bilanir, ekki til markaðssetningar og ekki til að fylgjast með því hvað þú gerir í appinu.
Hvernig við notum gögnin
Gögnin eru notuð til að veita eiginleika appsins innan hópanna þinna og til að senda þér áminningar um það sem er framundan. Við seljum ekki gögnin þín, deilum þeim ekki og notum þau ekki í auglýsingar.
Markaðspóstur
Við sendum aðeins fréttir eða kynningar ef þú hefur samþykkt það sérstaklega við nýskráningu. Þú getur dregið samþykkið til baka hvenær sem er — í stillingum appsins eða með því að senda okkur línu. Það hefur engin áhrif á virkni appsins.
Hverjir sjá gögnin þín
Aðeins meðlimir þeirra hópa sem þú tilheyrir sjá nafn þitt, prófílmynd og virkni þína í viðkomandi hóp. Enginn utan hópsins hefur aðgang.
Hvar gögnin eru geymd
Gögnin eru geymd á öruggan hátt hjá Supabase (gagnagrunnur og myndir) og Google Firebase (innskráning, ýtitilkynningar og villuskýrslur). Báðir aðilar starfa sem vinnsluaðilar fyrir okkar hönd.
Gögnin hjá Supabase — hópar, uppskriftir, verkefni, einkunnir, matseðlar og villuloggið okkar — eru geymd í Frankfurt innan Evrópu. Innskráningin og villuskýrslur úr appinu fara hins vegar um gagnaver Google utan Evrópu, þar á meðal í Bandaríkjunum, á grundvelli EU–US Data Privacy Framework.
Hversu lengi
Við geymum gögnin þín á meðan reikningurinn þinn er virkur. Eyðir þú reikningnum er þeim eytt strax, að undanskildu því sem okkur ber lagaleg skylda til að varðveita lengur.
Að eyða reikningnum þínum
Þú getur eytt reikningnum þínum beint í appinu — undir stillingum. Þá er notandareikningnum og gögnunum þínum eytt. Efni sem þú settir inn í hóp (til dæmis uppskrift eða bókaeinkunn) getur staðið eftir hjá hópnum án tengingar við þig.
Réttindi þín
Samkvæmt persónuverndarlögum (GDPR) átt þú rétt á að fá afrit af gögnunum þínum, láta leiðrétta þau, láta eyða þeim, takmarka vinnslu þeirra og andmæla vinnslu. Sendu okkur línu á hallo@plonum.app og við bregðumst við innan mánaðar. Teljir þú að við förum ekki rétt með gögnin þín getur þú kvartað til Persónuverndar.
Börn
Til að stofna venjulegan reikning þarftu að vera 13 ára eða eldri.
Börn geta þó tekið þátt í fjölskylduhópi, og þá án þess að stofna reikning. Foreldri býr til fjölskyldukóða og slær sjálft inn nafn barnsins. Barnið slær kóðann inn í appinu og fær takmarkaðan aðgang að þeirri einu fjölskyldu — það má gefa uppskriftum einkunn og breyta vikumatseðli, en ekki búa til uppskriftir eða aðra hópa.
Við söfnum engum persónuupplýsingum frá barninu. Það gefur hvorki upp netfang, símanúmer né neitt annað; innskráningin er nafnlaus. Eina sem er geymt er nafnið sem foreldrið sló inn. Foreldrið stjórnar aðganginum og getur fjarlægt barnið úr hópnum hvenær sem er.
Breytingar
Ef við breytum þessari stefnu uppfærum við dagsetninguna efst. Verði breytingin veruleg látum við vita í appinu.