Aðstoð

Sendu okkur línu á hallo@plonum.app — við svörum samdægurs.

Hvernig bý ég til hóp?

Á forsíðunni velur þú Búa til hóp og síðan tegund: Fjölskyldan (uppskriftir, vikumatseðill, verkefnalisti), Bókaklúbburinn (bók mánaðarins, einkunnir, meðmæli, sagan) eða Hittingur (reglulegur viðburður með mætingu).

Hvernig býð ég fólki í hópinn?

Opnaðu hópinn og veldu Bjóða. Þú færð boðskóða eða hlekk sem þú sendir áfram. Sá sem fær hann opnar Plönum og slær kóðann inn. Hópar eru lokaðir — enginn kemst inn án boðs.

Get ég boðið barninu mínu?

Já, inni í fjölskylduhópi er Bjóða barni. Þú slærð inn nafn barnsins og færð fjölskyldukóða. Barnið opnar Plönum, velur Ég er með fjölskyldukóða og slær hann inn — það þarf hvorki netfang né reikning. Barnið fær aðgang að þessari einu fjölskyldu og má gefa uppskriftum einkunn og breyta vikumatseðli. Þú getur fjarlægt það hvenær sem er. Frítt.

Ég fæ engar áminningar

Athugaðu tvennt: að þú hafir leyft tilkynningar þegar appið bað um það (Stillingar á símanum → Plönum → Tilkynningar), og að áminningar séu kveiktar fyrir hópinn. Ef Low Data Mode er á í símanum getur hann haldið aftur af tilkynningum.

Hvernig eyði ég reikningnum mínum?

Prófíltáknið efst til hægri → skrunaðu neðst → Eyða reikningi. Þá er reikningnum og gögnunum þínum eytt. Efni sem þú settir inn í hóp getur staðið eftir hjá hópnum án tengingar við þig.

Hvernig fer ég úr hópi?

Opnaðu hópinn og veldu að ganga úr honum. Hópstjóri getur líka fjarlægt meðlimi.

Hvað kostar Plönum?

Það er frítt á meðan beta stendur yfir. Síðar verður hluti eiginleikanna gjaldskyldur og við látum vita áður en það gerist. Engar auglýsingar, engin rakning.

Finn ekki bókina mína

Bókasafnið nær yfir allar íslenskar bækur og þýðingar síðustu tíu ára og stækkar stöðugt. Finnir þú ekki titil máttu senda okkur hann á hallo@plonum.app og við bætum honum við.

Annað

Persónuvernd · Skilmálar

← Til baka á forsíðu